top of page
  • LinkedIn

Fjóla María

Ráðgjafi í stefnu, umbótum, umbreytingu og teymisvinnu

Fjóla María Ágústsdóttir er ráðgjafi og stofnandi Fit4digital. Hún hjálpar stjórnendum, teymum og vinnustöðum að skapa skýrleika, virkja fólk og koma stefnu, umbótum og breytingum í framkvæmd.

Fjóla María hefur yfir tuttugu ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, breytingastjórnun, verkefnastjórnun, þjónustu- og ferlaþróun og endurhönnun verklags. Í gegnum árin hefur hún unnið með fyrirtækjum, sveitarfélögum, ráðuneytum og opinberum stofnunum að flóknum þverfaglegum verkefnum þar sem þarf að ná utan um margar raddir, skapa sameiginlega sýn og breyta hugmyndum í raunhæf næstu skref.

Nálgun Fjólu Maríu byggir á þeirri trú að árangursríkar breytingar verði ekki eingöngu til með góðri stefnu eða fallegum glærum. Þær verða til þegar fólk skilur tilganginn, sér sitt hlutverk, fær að leggja sitt af mörkum og vinnur eftir skýrum ramma.

Hún leggur áherslu á að styrkja stjórnendur í umbreytingum með því að skýra sýnina, efla teymi og liðsheild, hanna vinnustofur sem nýta hugvit starfsfólks við lausn áskorana og bæta skipulag, forgangsröðun verkefna, verklag og ferla til að ná árangri.

Fjóla María er með MBA gráðu frá Stirling University í Skotlandi, B.Sc. í Matvælafræði með áherslu á vöruþróun og næringarfræði frá HÍ, IPMA c vottun í verkefnastjórnun og hefur setið nám í hönnunarhugsun frá Design Thinkers Academy í London og í Digital Transformation for Government: Innovating Public Policy frá Harvard Kenney School í Boston. Auk þess hefur Fjóla tekið fjölda námskeiða í gegnum tíðina í fjármálum, agile verkefnastjórnun, stjórnun og leiðtogafræðum.

DSC08901_edited_edited.jpg

Menntun

2003-2004

University of Stirling
Scotland

MBA viðskiptafræði

1996-1999

Háskóli Íslands

B.Sc. Matvælafræði - Raunvísindadeild Háskóla Íslands - áhersla á vöruþróun og gæðastjórnun

Hafðu samband 

Heimilisfang:

Fífumýri 1 

210 Garðabær

Sími: 861 4779

Netfang: fjolamaria@fit4digital.is

bottom of page