top of page
  • LinkedIn

Sérhannaður stefnudagur eða starfsdagur skilar meiru en góðri stemningu.

Vinnustofa - hendur.avif

Stefnudagur eða eins og sumir kalla hann, starfsdagur er gríðarlega verðmætt tækifæri til að safna fólki saman, ræða áherslur, efla tengslin, setja leikreglurnar, skýra sýnina og undirbúa næstu mánuði.  En of oft enda stefnudagar með góðri umræðu en án þess að næstu skref sé skilgreind, ábyrgð ákveðin eða forgangsröðun verði skýr. 

Ég hef leitt stefnu- og starfsdaga í mörg ár fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög og hanna hvern dag út frá þörfum og þannig að hann endi á niðurstöðu, ekki bara góðri umræðu.

Endilega sendu mér línu á fjolamaria@fit4digital.is

Hvað er stefnudagur?

Markviss vinnudagur þar sem starfseining eða teymi stillir miðið: tengir eigin vinnu við stefnu skipulagsheildarinnar, fer heiðarlega yfir stöðuna, setur sér fá og skýr markmið og mótar aðgerðaáætlun sem hægt er að fylgja eftir.

 

Vel hannaður stefnudagur hjálpar hópnum að:

  • skýra sameiginlega sýn og áherslur

  • efla liðsheild og traust

  • forgangsraða verkefnum betur

  • virkja hugvit starfsfólks

  • koma stefnu, umbótum og breytingum í framkvæmd

  • búa til raunhæf næstu skref sem hægt er að fylgja eftir

 

Ferlið er einfalt: stutt samtal um markmið → ég hanna daginn → ég leiði hópinn í gegn → þið standið eftir með niðurstöður og næstu skref.

Hafðu samband og ég sérsníð dag fyrir ykkur.

Stefna og forgangsröðun

Fyrir hópa sem vilja tengja stefnu fyrirtækis eða stofnunar við daglegt starf, velja hvað skiptir mestu máli, átta sig á styrkleikum hópsins og skilgreina skýr næstu skref. 

2

Liðsheild og teymiskipulag

Fyrir teymi sem vilja styrkja samvinnu, traust, hlutverk og sameiginlegan takt. 

3

Umbætur og nýsköpun

Fyrir vinnustaði sem vilja einfalda verklag, skilja þarfir notenda betur og finna nýjar lausnir og eða nálgun. 

4

Stafræn stefna og gervigreind

Fyrir vinnustaði sem vilja móta stafræna stefnu, ýtra hana eða festa betur í sessi og búa til skýrar leiðbeiningar með starfsfólki um ábyrga notkun gervigreindar. 

Hvað fær hópurinn út úr deginum?

Útkoman fer eftir markmiði dagsins, en að degi loknum liggja alltaf fyrir áþreifanlegar afurðir:

  • sameiginleg sýn á áherslur næstu mánaða

  • skýr forgangsröðun verkefna

  • hagnýt aðgerðaáætlun með ábyrgð og næstu skrefum

Markmiðið er einfalt: að dagurinn verði ekki bara góður dagur — heldur upphaf að betri framkvæmd.

Fyrir hverja?

Starfsdagar og vinnustofur með Fit4digital henta sérstaklega vel fyrir:

  • fyrirtæki og stofnanir sem vilja fara vel inn  næstu mánuði

  • stjórnendateymi sem þurfa að stilla saman strengi

  • starfseiningar og teymi sem þurfa skýrari fókus og betri samvinnu

  • teymi sem vilja efla samvinnu og liðsheild

  • hópa sem standa frammi fyrir breytingum, umbótum eða nýjum verkefnum

Viltu ræða starfsdag eða vinnustofu fyrir haustið?

Ef þú ert að skipuleggja starfsdag, stjórnendadag eða vinnustofu fyrir fyrirtæki, stofnun eða starfseiningu, þá er ég til í að ræða hvernig hægt er að hanna dag sem skilar raunverulegu virði.

Bókaðu starfsdag eða vinnustofu fyrir haustið.


Sendu mér línu á: fjolamaria@fit4digital.is
eða skoðaðu nánar á fit4digital.is

Hafðu samband 

Heimilisfang:

Fífumýri 1 

210 Garðabær

Sími: 861 4779

Netfang: fjolamaria@fit4digital.is

bottom of page