top of page
  • LinkedIn
Sigríður Sigurðardóttir, forstöðukona stafrænnar umbreytingar hjá Veitum ohf.

Pétur Krogh Ólafsson, forstöðumaður sjálfbærni og viðskiptaþróunar hjá Veitum ohf.

Við hjá Veitum ohf. höfum átt afar gott samstarf við Fjólu Maríu Ágústsdóttur, eiganda Fit4digital, í tengslum við umbótaverkefni á skipulagsferli Veitna. Markmið verkefnisins var að greina og bæta ferla þannig að Veitur væru betur og fyrr upplýstar um breytingar á skipulagi sveitarfélaga, og skapa skýrari verkferla sem styðja við skilvirka ákvarðanatöku og framkvæmd.
Fjóla leiddi verkefnið með fagmennsku, skýrri nálgun og góðu skipulagi. Hún framkvæmdi ítarlega greiningu á núverandi ferlum, skipulagði og stýrði vinnustofum með lykilaðilum, setti fram tillögur að úrbótum og hagnýtum lausnum, og mótaði frumgerð að nýju ferli sem auðveldar upplýsingaflæði og samvinnu milli sviða.
Auk þessa tók Fjóla að sér hlutverk sprettlóðs á þriggja daga nýsköpunarfestivali Veitna, þar sem hún studdi við þátttakendur í að þróa hugmyndir, vinna markvisst að lausn áskorana og skila frumgerð af lausn. Þar nýtti hún fjölbreyttar aðferðir úr sprettum, hönnunarhugsun og nýsköpun sem hvöttu til skapandi samvinnu og fókus.
Samstarfið hefur einkennst af:

  • Góðum samskiptum og skýru skipulagi

  • Getu til að virkja ólíka hópa og skapa sameiginlega sýn

  • Tillögum að hagnýtum lausnum 

  • Innsýn í ferla, þjónustu og áskoranir sem tengjast bæði opinberum aðilum og fyrirtækjum í veitustarfsemi


Við hjá Veitum mælum eindregið með Fjólu Maríu og Fit4digital fyrir verkefni sem krefjast stefnumótunar, umbóta í ferlum, nýsköpunarvinnu og faglegrar verkefnastjórnunnar.

Pétur Georg Markan bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og

Röðull Reyr Kárason stafrænn leiðtogi Hveragerðisbæjar

Við hjá Hveragerðisbæ höfum átt farsælt og uppbyggilegt samstarf við Fjólu Maríu Ágústsdóttur, ráðgjafa og eiganda Fit4digital slf. Hún hefur unnið með okkur að greiningu á stafrænni stöðu og gerð þjónustustefnu, stafrænnar stefnu og aðgerðaáætlunar í stafrænni umbreytingu og hefur leitt þá vinnu af mikilli fagmennsku, innsýn og skýrri nálgun.

Fjóla býr yfir djúpri þekkingu á hönnun og lóðslun vinnustofua, stafrænni umbreytingu, innleiðingu         stafrænnar þjónustu og stjórnsýslu sveitarfélaga.  Fjóla María virkjar og vinnur vel með starfsfólki, nær að skapa sameiginlega sýn og koma af stað aðgerðum sem byggja á raunverulegum þörfum og gögnum.

Samstarfið hefur einkennst af góðum samskiptum, góðu skipulagi og traustri leiðsögn.

 

Við mælum eindregið með Fjólu Maríu og Fit4digital fyrir önnur sveitarfélög sem vilja vinna markvisst að umbótum, þróun þjónustu og/eða innleiðingu stafrænna lausna.

Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins

Fjóla María leiddi stefnumótunarferli með stjórnendum Markaðsstofa landshlutanna þar sem markmiðið var að skerpa sameiginlega stefnu, skapa aukna samstöðu og leggja skýran grunn að næstu skrefum.

Ferlið var vel skipulagt og markvisst og Fjóla María hélt vel utan um bæði umræðu og vinnu hópsins. Hún skapaði rými fyrir ólík sjónarmið en náði jafnframt að leiða hópinn að sameiginlegri niðurstöðu og skýrari forgangsröðun.

Afrakstur vinnunnar var skýrari sameiginleg stefna, aukin samstaða milli markaðsstofanna og skýrari markmið og næstu skref. Vinnan hjálpaði við að forgangsraða betur og skapa sameiginlegan fókus fyrir áframhaldandi samstarf.

Fjóla María er fagleg, skipulögð og góð í að leiða hópa í gegnum stefnumótunarferli þar sem mikilvægt er að ná fólki saman, halda fókus og umbreyta umræðu í skýrar ákvarðanir og framkvæmanleg næstu skref.

 

Ég get hiklaust mælt með henni í sambærileg verkefni.

Kjartan Hansson, eigandi Digital Solutions
Fjóla María  hannar og stýrir vinnustofum við endurhönnun þjónustu sem nýtast mjög vel við áframhaldandi stafræna þróunarvinnu.  Framsetning afurða vinnustofa í Miro skýra ferlin vel sem og skriflegar samantektir við áframhaldandi hönnunar- og þróunarvinnu vegna gagnatenginga og stafrænnar lausnavinnu.
Sumarliði Helgason, sviðstjóri þjónustu- og skipulagssviðs Akureyrarbæ
Ég var mjög ánægður með námskeið í hönnunarhugsun og endurhönnun ferla sem Fjóla kenndi stórum hópi starfsmanna innan sveitarfélagsins og notaði raundæmi, þ.e. þjónustuferli innan sveitarfélagsins. Ég tel námskeiðið geta nýst sveitarfélögum afar vel til að ráðast á ferla líkt og var gert á námskeiðinu/vinnustofunni og finna þannig hvar ferlið getur brotnað eða hvar helstu möguleikar eru á að bæta ferlið, nýta gervigreind og gera það skilvirkara.
Lára María Valgerðardóttir varaformaður Sjúkraliðafélags Íslands

Sjúkraliðafélagið fékk Fjólu Maríu hjá Fit4digital til að vera með námskeiðið spretthugsun og teymisárangur þar sem á hluta námskeiðisins var unnið með raunhæfa áskorun.

 

Fjóla María leiddi námskeiðið af mikilli þekkingu, frábæru skipulagi og vann með okkur að frábærri lausn sem hjálpar okkur í daglegum störfum.

 

Við hjá Sjúkraliðafélagi Íslands mælum eindregið með þjónustu Fit4digital, faglegt og allt til fyrirmyndar.

Samstarfsaðilar

Fit4digital hefur átt ánægjulegt samstarf með mörgum fjölbreyttum fyrirtækjum og stofnunum m.a.

Hafðu samband 

Heimilisfang:

Fífumýri 1 

210 Garðabær

Sími: 861 4779

Netfang: fjolamaria@fit4digital.is

bottom of page